Fyrir bókhaldsstofur

Skrif sér um endurteknu verkin fyrir öll fyrirtæki stofunnar. Það bókar, afstemmir og jafnar, og þú samþykkir.

Sparaðu tíma við allar daglegar bókhaldsaðgerðir

Bókhald er að miklu leyti sama handavinnan aftur og aftur: fylgiskjöl slegin inn, bankinn afstemmdur, reikningar bókaðir. Vinnan eykst með hverju fyrirtæki og álagið nær hámarki fyrir hver VSK-skil. Skrif sér um þessi daglegu verk fyrir öll fyrirtækin.

Taktu saman alla reikninga frá Hrafnsbergi ehf. og sýndu breytinguna milli mánaða

Hvers vegna stemmir bókhaldið ekki við bankann eftir apríl?

Sýndu mér allt óafstemmt á bankareikningi 8245 á þessu ári

Komdu með tíu hæstu kostnaðarfærslur ársins ásamt fylgiskjölunum þeirra

Vantar einhver fylgiskjöl með Elko-færslunum í janúar og febrúar?

Farðu yfir Hlynsþrif ehf. og athugaðu hvort eitthvað sé tvíbókað

Sæktu alla reikninga frá Hrafnsbergi ehf. síðustu átta mánuði og listaðu þá

Hvaða færslur vantar fylgiskjöl fyrir VSK-uppgjörið í maí og júní?

Finndu allar tvígreiðslur til birgja á þessu ári

Stemmdu tollskýrsluna af við innkaupareikninginn og bókaðu aðflutningsgjöldin

Lestu Excel-skjalið með útlögðum kostnaði og leggðu til færslurnar

Hvað er útistandandi hjá viðskiptavinum og hvað er komið fram yfir gjalddaga?

Berðu saman rekstrarkostnaðinn í ár við í fyrra, sundurliðað eftir mánuðum

Sjálfvirk afstemming við bankann

Skrif sækir bankafærslurnar jafnóðum og afstemmir þær við bókhaldið í öllum fyrirtækjunum. Það sem stemmir er afgreitt og það sem stendur út af sést strax.

Síminn hf.
Fjarskiptaþjónusta
ISK −6.980
Afstemmt
Macland
Tölvubúnaður
ISK −124.500
Afstemmt
N1
Eldsneyti
ISK −8.450
Afstemmt
Greiðsla vegna: Síminn hf., Fjarskiptaþjónusta
2362Fjarskiptakostnaður5.629
4320Innskattur 24%1.351
3200Bankareikningur6.980

Þú samþykkir allar aðgerðir

Ekkert fer inn í bókhaldið án samþykkis bókarans. Þú segir Skrif hvað á að gera, ferð yfir tillöguna og samþykkir. Skrif lærir vinnubrögð stofunnar og man þau fyrir hvert fyrirtæki.

Stofna dagbókarfærslu
02.06.2026Eldsneyti, N1
2423Eldsneyti6.815
4320Innskattur 24%1.635
3200Bankareikningur8.450
8.450Debet
8.450Kredit
Engin færsla fer inn án þíns samþykkis.

Skrif vinnur með kerfunum sem þið notið nú þegar

Skrif er ekki nýtt bókhaldskerfi sem þið þurfið að skipta yfir í. Það vinnur með bankanum og bókhaldskerfinu sem stofan notar í dag, hvort sem það er dk, Business Central eða Payday, og ekkert þarf að tvískrá. Við aðstoðum ykkur við uppsetninguna og tengingarnar.

  • Arion bankiSækir færslur, stöður og sölunótur korta
  • LandsbankinnSækir færslur og stöður
  • ÍslandsbankiSækir færslur, stöður og sölunótur korta
  • dkBókar færslur, stofnar reikninga og lánardrottna
  • PaydayStofnar reikninga, sækir launafærslur, viðskiptavini og starfsmenn
  • Business CentralStofnar og bókar reikninga og jafnar opnar færslur

Öll fyrirtækin á einum stað

Hvert fyrirtæki er tengt sínum bönkum og sínu bókhaldskerfi, og einfalt er að skipta á milli þeirra.

Melvík ehf.
kt. 710920-3110
Afstemmt
Bláfjörður ehf.
kt. 700298-9309
Afstemmt
Tjarnarvík ehf.
kt. 710617-9360
3 atriði bíða
JÞ Lagnir ehf.
kt. 710492-9339
Afstemmt
Hólmafjörður ehf.
kt. 700221-9390
5 atriði bíða
Trésmiðja Jóa ehf.
kt. 711115-9390
Afstemmt
Vík og Fell ehf.
kt. 710904-1470
Afstemmt
Mýrdæla ehf.
kt. 710619-9340
1 atriði bíður

Skrif auðveldar endurteknu verkin

Skrif sækir réttu upplýsingarnar fyrir hvert fyrirtæki og leggur til aðgerðina, hvort sem á að stofna reikning, skrá útgjöld eða stofna viðskiptavin eða lánardrottin.

Skrif greinir stöðuna
hvað þarf að gera
Leggur til drög
að réttri aðgerð
Bókað og afstemmt
eftir þitt samþykki

Hvert fyrirtæki fær sitt netfang fyrir kvittanir

Áframsendu reikninga eða taktu mynd af kvittun og sendu á netfang fyrirtækisins. Skrif les seljanda, dagsetningu, upphæð og VSK, hvernig sem skjalið berst, og það bíður í spjallinu þegar þú þarft á því að halda. Sölunótur af kortum sækir Skrif sjálft til Arion banka og Íslandsbanka og festir við rétta færslu.

Netfang fyrirtækisins
Áframsendur reikningur
Mynd af kvittun
Sölunóta úr bankanum
N1 ehf.
Lesin
Dagsetning12.08.2026
Upphæð4.520 kr
VSK 24%875 kr

Stórt verkfærasett

Á bak við spjallið eru tugir aðgerða, hver og ein sniðin að kerfunum sem fyrirtækið er tengt.

Stofnaðu sölureikning á Melvík ehf.
Skrif
Stofna sölureikning
Fylgiskjal2026-0412
Bókhaldslykill1100 Sala
DagbókSölubók
dkSérsniðið að dk
85 aðgerðir, hver sniðin að sínu kerfi og háð samþykki
AfstemmaBóka færsluStofna sölureikningStofna útgjöldLesa fylgiskjölStofna viðskiptavinÞjóðskráGengi gjaldmiðla

Skrif lærir hvernig stofan vinnur

Þegar þú leiðréttir Skrif man það leiðréttinguna og gerir rétt næst, fyrir hvert fyrirtæki fyrir sig.

Síminn hf., símreikningur
2362 FjarskiptakostnaðurLært

Næst þegar reikningur kemur frá Símanum leggur Skrif þetta til.

Minni Skrif
Síminn hf.2362 Fjarskiptakostnaður
N12423 Eldsneyti
Olís2423 Eldsneyti
Azure2365 Hugbúnaður

Engin lokatörn fyrir hver VSK-skil

Þegar bókhaldið er afstemmt daglega þarf ekki að taka til á síðustu stundu. Villur koma í ljós strax og skiladagurinn kallar ekki lengur á yfirvinnu.

Vinnuálag án SkrifVinnuálag með Skrif
jan-febmar-aprmaí-júnjúl-ágúsep-oktnóv-des

Láttu Skrif vinna í bakgrunni

Settu verk af stað í mörgum fyrirtækjum í einu og haltu áfram með annað á meðan. Þegar þú kemur til baka bíður það sem er tilbúið eftir samþykki.

Melvík ehf.
Skiptu á milli
Tilbúið síðan síðast
BankafstemmingTilbúið
SölureikningarÍ bið
Skiptu um fyrirtæki, Skrif klárar verkið í bakgrunni á meðan.

Byggt fyrir íslenskt bókhald.

Skrif þekkir íslenskar reglur og flettir sjálft upp því sem bókari þyrfti annars að leita að.

Innkaupareikningur, Fjarðasími ehf.
2362 Fjarskiptakostnaður10.073
4320 Innskattur 24%2.417
Samtals12.490

VSK og innskattur

Hver reikningur skiptist rétt á milli kostnaðarlykils og innskatts.

Skerjaverk ehf.Fyrirtækjaskrá
kt. 710416-0480
Ari PálssonÞjóðskrá
kt. 310487-2319

Þjóðskrá og Fyrirtækjaskrá

Flettir upp fólki og fyrirtækjum eftir nafni eða kennitölu og stofnar nýja lánardrottna beint úr Fyrirtækjaskrá.

Miðgengi 13.03.2026
EUR144,20
USD125,65
GBP166,70

Miðgengi Seðlabankans

Miðgengi dagsins, svo gengismunur reiknast rétt.

Kvittun, Vélhamar ehf.Lesin
Kennitala711122-0990
VSK24%
Samtals8.450

Les fylgiskjöl

Les kvittanir, reikninga og myndir, líka handskrifuð skjöl.

Við komum ykkur af stað.

Við tengjum bankann og bókhaldskerfið með ykkur og förum yfir fyrstu bókanirnar saman. Fjöldi notenda er ótakmarkaður og þið getið sagt upp hvenær sem er.