Skrif sér um bókhaldið.
Þú samþykkir.
Gervigreind fyrir íslenska bókara. Bankafærslur, reikningar og kvittanir fara beint í bókhaldskerfið, hundruð færslna á örfáum mínútum.
Ég fann 48 óbókaðar færslur og bókaði hverja eins og fyrri færslur frá sama birgi:
Vinnur með kerfunum sem þú notar nú þegar.
Tengt íslensku bönkunum
- Bankareikningar
- Kreditkort
- Færslur
- Stöður
- Sölunótur
Sniðið að íslenskum bókhaldskerfum
- Bókhaldsfærslur
- Innkaupareikningar
- Sölureikningar
- Jafnanir
- Deildir og verk
Íslensk fyrirtæki treysta Skrif
Fastland, Fjártækni & bókhald, &Pálsson, Málmiðjan, Pipar\TBWA, Borg byggingalausnir, Appetite, Löggiltir endurskoðendur
„Við hjá Fastland höfum innleitt Skrif hjá mörgum félögum með góðum árangri og gríðarlegum tímasparnaði. Mæli fyllilega með kerfinu fyrir alla sem koma að færslu bókhalds.“
Silja DöggFramkvæmdastjóri Fastlands„Fyrirtæki sem tók mig yfirleitt þrjá klukkutíma að bóka tekur mig núna 30 mínútur með Skrif.“
Lára BjörkViðurkenndur bókariHandavinnan heyrir sögunni til.
Veldu verk og sjáðu Skrif vinna það.
Hver færsla bókuð eins og fyrri færslur frá sama birgi. Þú samþykkir allar í einu.
Sjálfvirk afstemming.
Skrif parar hverja bankafærslu við færsluna í bókhaldinu, líka þegar ein innborgun greiðir tvo reikninga. Það sem vantar bókar Skrif og þú samþykkir.
- −8.490ÓafstemmtSíminn hf.13.03.2026Síminn hf., reikningur 2026-0312.03.2026DebetKredit2362Fjarskiptakostnaður6.8474320Innskattur 24%1.6433200Bankareikn. Arion8.490
- 372.000ÓafstemmtVélbjarg ehf.16.03.2026Greiðsla reikninga 4509 og 452216.03.2026DebetKredit3200Bankareikn. Arion372.0003400Viðskiptakröfur248.0003400Viðskiptakröfur124.000
- −12.340ÓafstemmtOlís Norðlingaholti17.03.2026Olís, eldsneyti17.03.2026DebetKredit2423Eldsneyti9.9524320Innskattur 24%2.3883200Bankareikn. Arion12.340
- −1.250ÓafstemmtFærslugjöld31.03.2026Færslugjöld mars31.03.2026DebetKredit2995Bankakostnaður1.2503200Bankareikn. Arion1.250
Sjálfvirkar jafnanir.
Tíu reikningar og tvær greiðslur. Skrif finnur hvaða reikningar voru greiddir með hvorri greiðslu og jafnar þá saman. Handvirkt tekur það drjúga stund.
- 02.03Reikn. 1041Reikningur 104184.000
- 03.03Reikn. 1042Reikningur 1042126.500
- 05.03Reikn. 1043Reikningur 104342.900
- 06.03Reikn. 1044Reikningur 1044215.000
- 08.03Reikn. 1045Reikningur 104518.600
- 10.03Reikn. 1046Reikningur 104663.200
- 11.03Reikn. 1047Reikningur 104737.450
- 13.03GreiðslaGreiðsla526.150
- 16.03Reikn. 1048Reikningur 104898.400
- 19.03Reikn. 1049Reikningur 104931.750
- 22.03Reikn. 1050Reikningur 105057.300
- 26.03GreiðslaGreiðsla248.950
| Viðgerð á gröfu, verk 1043 | 184.000 |
| Varahlutir | 62.400 |
| VSK 24% | 59.136 |
| Samtals m/VSK | 305.536 |
Reikningurinn lesinn og bókaður niður í hverja línu.
Skrif les reikninginn og bókar hverja línu á réttan lykil, deild, verkefni og VSK, eins og fyrri reikninga frá sama birgi. Færslan fer beint í bókhaldskerfið.
Fylgiskjölin koma sjálf.
Fylgiskjöl berast úr tölvupósti, símanum, bankanum og Unimaze. Skrif les þau jafnóðum og festir við rétta færslu.
- Vélhamar ehf. reikningur 2026-0418.pdfÍ greiningu12.03.2026Úr tölvupósti 12. mar.
- Kvittun N1 Ártúnshöfða.heicNýtt11.03.2026Úr símanum 11. mar.
- Síminn hf. 2026-03.xmlNýtt10.03.2026Frá Unimaze 10. mar.
- Sölunóta Krónan Granda.pdf09.03.2026Frá banka 9. mar.
- Advania reikningur 88231.pdf09.03.2026Úr dk 9. mar.
- Olís Norðlingaholti.jpg07.03.2026Úr símanum 7. mar.
Kann bókhaldið þitt frá fyrsta degi.
Skrif skoðar hvernig þið hafið bókað hingað til og heldur því áfram. Ef þú leiðréttir eitthvað man Skrif það næst, fyrir hvert fyrirtæki fyrir sig.
- Síminn hf.2362Fjarskiptakostnaður-VSK 24%×48
- Olís2423Eldsneyti-Deild 20×112
- Vélhamar ehf.2341Viðhald véla-Verk eftir reikningi×21
- Securitas2354Öryggisgæsla-Deild 10×12
Drög að ársreikningnum.
Skrif tekur saman hreyfingar ársins, setur upp rekstrar- og efnahagsreikning með samanburði við fyrra ár og skrifar drög að skýringum. Þú ferð yfir og klárar.
Ég set upp drögin:
- Sæki stöður og hreyfingar 2025
- Flokka lykla á rekstrar- og efnahagsreikning
- Ber saman við 2024
- Skrifa skýringar
- Set upp skjalið
Drögin eru tilbúin til yfirferðar.
Ársreikningur 2025, drög.pdf
pdf- Rekstrartekjur184.320162.905
- Vörunotkun(71.240)(64.118)
- Laun og launatengd gjöld(58.910)(52.330)
- Annar rekstrarkostnaður(24.115)(22.870)
- Afskriftir(6.480)(5.990)
- Rekstrarhagnaður23.57517.597
- Fjármagnsliðir(2.140)(2.610)
- Tekjuskattur(4.287)(2.997)
- Hagnaður ársins17.14811.990
Ársreikningurinn er gerður í samræmi við lög nr. 3/2006 um ársreikninga og byggður á kostnaðarverði. Hann er gerður í íslenskum krónum.
Byggt fyrir íslenskt bókhald.
Skrif þekkir íslenskar reglur og flettir sjálft upp því sem bókari þyrfti annars að leita að.
VSK og innskattur
Hver reikningur skiptist rétt á milli kostnaðarlykils og innskatts.
Þjóðskrá og Fyrirtækjaskrá
Flettir upp fólki og fyrirtækjum eftir nafni eða kennitölu og stofnar nýja lánardrottna beint úr Fyrirtækjaskrá.
Miðgengi Seðlabankans
Miðgengi dagsins, svo gengismunur reiknast rétt.
Les fylgiskjöl
Les kvittanir, reikninga og myndir, líka handskrifuð skjöl.
Þú samþykkir hverja færslu. Við notum ekki gögnin þín til að þjálfa gervigreind.
Ekkert fer inn í bókhaldið án þíns samþykkis og hver aðgerð er skráð. Gögnin eru geymd innan Evrópu, aðskilin milli fyrirtækja og dulkóðuð.
Lestu persónuverndarstefnuna- Engin þjálfun gervigreindar
- Gögnin þín eru ekki notuð til að þjálfa gervigreindarlíkön, hvorki okkar né þjónustanna sem við byggjum á.
- Gagnagrunnar í Evrópu
- Geymd innan Evrópu og unnin í samræmi við evrópskar persónuverndarkröfur.
- Aðskilin gögn
- Gögn hvers fyrirtækis eru aðskilin frá öðrum. Enginn viðskiptavinur sér gögn annars.
- Dulkóðað í flutningi og geymslu
- Öll samskipti eru dulkóðuð með TLS og gögnin geymd á dulkóðuðum innviðum.
- Innviðir með SOC 2 og ISO 27001
- Hýsing, gagnagrunnur og innskráning hafa staðist SOC 2 Type II úttekt. Hýsing og gagnagrunnur eru auk þess ISO 27001 vottuð.
- GDPR og íslensk lög
- Í samræmi við GDPR og persónuverndarlög nr. 90/2018, þar á meðal rétt til aðgangs að gögnum og eyðingar þeirra.
Við komum ykkur af stað.
Við tengjum bankann og bókhaldskerfið með ykkur og förum yfir fyrstu bókanirnar saman. Fjöldi notenda er ótakmarkaður og þið getið sagt upp hvenær sem er.

